Enn einn góði dómurinn hefur nú birst í fjölmiðlum um Ástardrykkinn. Um er að ræða umfjöllun á nýjum vefmiðli sem nefnist www.midjan.is og er það Þórhildur Ólafsdóttir blaðamaður sem ritar umsögnina. Þar segir meðal annars: Stjarna kvöldsins var þó tvímælalaust Dísella. Maður býst einhvernvegin ekki við því að þessi smávaxna kona gefi frá sér kröftuga tóna – en jú, hún gersamlega negldi sönginn. Hún syngur svo fallega og af svo miklum krafti, að mér fannst, þar sem ég sat aftast í salnum, að hún væri við hlið mér. Hvað eftir annað olli flutningur hennar gæsahúð og vellíðunartilfinningu. Bravó!
Dóminn í heild má lesa með því að smella hér.
Fleiri umsagnir um sýninguna má lesa með því að smella hér.
|