Ágústa Skúladóttir, leikstjóri Ástardrykksins, hlaut á dögunum viðurkenningu úr Minningarsjóði frú Stefaníu Guðmundsdóttir, leikkonu. Minningarsjóðurinn var stofnaður 1965 til minningar um móður Önnu Borg, leikkonu, frú Stefaníu Guðmundsdóttur, sem var ein virtasta leikkona landsins í upphafi síðustu aldar. Anna og eiginmaður hennar, danski leikarinn Poul Reumert, lögðu drög að sjóðnum.
Tilgangurinn er að gera hæfileikaríku leikhúsfólki mögulegt að kynna sér leiklist á erlendum vettvangi og var fyrst veitt úr sjóðnum 1970. Sjóðurinn hefur alls verðlaunað 34 listamenn á þeim tæplega fjörtíu árum, sem liðin eru frá stofnun hans. Styrkþegar að þessu sinni auk Ágústu voru Þröstur Leó Gunnarsson leikari og Jón Atli Jónasson, leikskáld. Afhending viðurkenninganna fór fram við hátíðlega athöfn í Iðnó og fengu styrkþegar afhentan svokallaðan Stefaníustjaka við það tækifæri.
Sviðsetning Ágústu á Ástardrykknum hefur vakið verðskuldaða athygli og lof bæði gagnrýnenda og áhorfenda. Síðustu tvær aukasýningar á óperunni verða á föstudags-og sunnudagskvöld, 27. og 29. nóvember kl. 20.
|