Þau Þóra Einarsdóttir og Gissur Páll Gissurarson verða í aðalhlutverkum í Ástardrykknum á sýningunni næstkomandi sunnudag, 8. nóvember. Syngja þau þá hlutverk Adinu og Nemorinos, eins og ráðgert hefur verið frá upphafi. Á sýningunni næstkomandi laugardag, 7. nóvember, syngja hins vegar Dísella Lárusdóttir og Garðar Thór Cortes aðalhlutverkin, og föstudaginn 13. nóvember verður enn ný útfærsla í hlutverkaskipaninni, því þá syngur Þóra aftur hlutverk Adinu en Garðar Thór syngur hlutverk Nemorinos. Í öðrum hlutverkum í öllum sýningum eru þau Bjarni Thor Kristinsson, Ágúst Ólafsson og Hallveig Rúnarsdóttir.
Uppselt er á allar sýningar á Ástardrykknum, en ósóttar pantanir eru seldar daglega. Sími í miðasölu er 511-4200 og er svarað þar frá kl. 10-18 alla virka daga en frá kl. 14 um helgar.
|