Diddú, Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Óskar Pétursson halda aukatónleika á sinni vinsælu kvöldskemmtun, „Frá suðri til norðurs með sópran í eftirdragi!“ í Íslensku óperunni sunnudagskvöldið 1. nóvember kl. 20. Með söngvurum leikur píanóleikarinn Jónas Þórir.
Efnisskrá tónleikanna er í léttari kantinum og glens og gaman haft í hávegum, þó dramatíkin komi að sjálfsögðu með eins og tenóra er von og vísa þegar aðeins er um einn sópran er að ræða! Á meðal söngatriða á efniskránni eru bæði íslensk og erlend lög og aríur.
Troðfullt hús var á fyrri tónleikunum þeirra í september og mikil eftirspurn eftir aukatónleikum, en ekki var hægt að koma þeim við fyrr en nú. Miðaverð er sem fyrr 3.900 kr.
Þriðju tónleikarnir verða síðan í Akureyrarkirkju þann 8. desember kl. 17. Miðasala fyrir tónleikana á Akureyri er í Bókaversluninni Eymundsson, Hafnarstræti.
|