Næstu hádegistónleikar Óp-hópsins í Íslensku óperunni verða þriðjudaginn 27. október kl. 12.15. Fram koma allir meðlimir hópsins, en sérstakur gestur á tónleikunum er hin góðkunna söngkona og söngkona ársins á Grímunni 2009, Valgerður G. Guðnadóttir, sem um þessar mundir heillar áheyrendur í Söngvaseiði í Borgarleikhúsinu en hefur þar að auki getið sér gott orð sem óperusöngkona, í Íslensku óperunni, með Sumaróperunni og víðar.
Á efnisskrá tónleikanna eru aríur, dúettar og samsöngvar úr óperum frá ýmsum tímum. Miðaverð er aðeins 1.000 kr. og taka tónleikarnir um 40 mínútur í flutningi. Gestir geta keypt samlokur, sælgæti og drykki fyrir og eftir tónleikana í forstofu Íslensku óperunnar.
|