Einn aðalsöngvaranna í Ástardrykknum, Garðar Thór Cortes, fékk leyfi frá æfingum fyrr í mánuðinum til að skreppa til London. Tilefnið var þó ekkert smáræði; að syngja einsöng á hinum heimsþekktu lokatónleikum Proms-tónleikaraðarinnar sem fram fer í Hyde Park ár hvert og er einn vinsælasti viðburður borgarinnar. Garðar var þar meðal annars í félagsskap mezzósópransöngkonunnar Katherine Jenkins og hjartaknúsarans og goðsagnarinnar Barry Manilow. Garðar segir upplifunina hafa verið góða. „Þetta var auðvitað voða gaman, að syngja fyrir svona marga,“ segir hann en gert er ráð fyrir að um fjörtíu þúsund manns hafi hlýtt á tónleikana í garðinum þetta kvöld, auk þess sem þeim var útvarpað og sjónvarpað í beinni útsendingu til milljóna manna. Garðar söng alls fimm aríur á tónleikunum við undirleik BBC Concert Orchestra undir stjórn Martin Yates, sem fram fóru 12. september.
|