
Kristinn Sigmundsson bassi nam söng hjá Guðmundi Jónssyni við Söngskólann í Reykjavík og síðar við óperudeild Hochschule für Musik und darstellende Kunst í Vínarborg undir handleiðslu Helene Karusso, Christian Möller og Wolfgang Gabriel.
Kristinn hefur á undanförnum árum sungið fjölmörg óperuhlutverk við helstu óperuhús álfunnar, svo sem í Amsterdam, Barcelona, Berlín, Flórens, Genf, Hamborg, Köln, Mílanó, New York og París. Hann hefur sungið með fjölmörgum þekktum hljómsveitarstjórum, svo sem James Levine, Riccardo Muti, Bernard Haitink, Sir Colin Davis og fleirum. Kristinn hefur tekið þátt í nokkrum erlendum hljóðritunum, og má þar nefna hlutverk Sarastros í upptöku Decca á Töfraflautunni með Drottningholm-hljómsveitinni í Svíþjóð undir stjórn Arnolds Östman. Með þeim söng hann einnig hlutverk Commendatore í Don Giovanni, í upptöku Decca. Sú upptaka fékk m.a. verðlaunin Diapasson d‘or í Frakklandi og Þýsku plötuverðlaunin (Der Deutsche Schallplattenpreis). Þá má nefna hlutverk Krists í upptökum Philips-útgáfunnar á Jóhannesarpassíu og Mattheusarpassíu Bachs undir stjórn Frans Brüggen. Þá hljóðritaði hann geisladisk með óperuaríum með Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Arnold Östman. Þar að auki hefur hann hljóðritað tvo ljóðaflokka Schuberts, Svanasöng og Vetrarferðina, ásamt Jónasi Ingimundarsyni píanóleikara.
Á döfinni hjá Kristni eru m.a. hlutverk í óperunum Meistarasöngvurunum eftir Wagner, í Covent Garden, Faust eftir Gounod og Parsifal í Parísaróperunni, Rosenkavalier eftir Richard Strauss í Köln, og La damnation de Faust eftir Berlioz í óperunni í San Fransisco, auk þess sem hann fer með hlutverk Basilios í fimm sýningum á Rakaranum í Sevilla í Íslensku óperunni í nóvember 2002.
Senda Kristni tölvupóst
|